GunniJak í Danmörku
25.1.04
  Bíleign í 24 tíma. Gott kaffi hjá Malcolm. .
Ég átti stefnumót við Rod í stúdíóinu hans kl. 11:00, en hann afboðaði það og bað mig að koma á morgun á sama tíma. Ok. Svo ég var bara í tölvunni fram eftir degi, en skrapp þá að heimsækja Malcolm vin minn. Ég byrjaði á því að skoða Ópelinn hátt og lágt og leist bara enn betur á hann í björtu en í myrkri. Suma hluti ætti maður bara að skoða í myrkri, en ekki bíla. Svo bauð hann mér inn og við fengum okkur te, hann er jú breskur að uppruna eins og flestir vinir mínir hér. Hann sagðist standa við það að gefa mér bílinn og sagði að hann hefði lagt honum endanlega fyrir ári síðan af því rafgeymirinn hefði verið orðinn ónýtur. Það hefði svo sem ekki verið babbur í mínum báti ef ekki hefði komið annað til. Það eru tryggingamál. Bíllinn er skráður í Gíbraltar og á breskum númerum þar af leiðandi, tryggður hjá tryggingafélagi í Bretlandi og nú ætlaði íslendingur að fara að tryggja hann til að keyra hann á Spáni. Það sér hver heilvita maður að þetta hefði orðið tóm vitleysa. Það er kergja á milli breta, Gíbraltarbúa og Spánverja útaf því hver á að eiga Gíbraltar og þessir aðilar gera allt sem þeir geta til að bögga hvern annan á löglegan hátt, með töfum, leti, ergelsi og skömmum. Ef allt hefði gengið eins og í sögu hjá mér hefði ég verið orðinn 2-300€ fátækari og hefði verið búinn að koma bílnum á götuna 3. apríl!!! Þannig að ég var ekki bíleigandi á Spáni nema í tvo sólarhringa.
Húsið hans Malcolms er á hektara stórri lóð sem er alsett trjám á stangli, það er ekki skógur heldu fullt af trjám. Af óteljandi gerðum og stærðum. Ég hafði með mér myndavélina og tók helling af myndum sem koma á myndasíðuna mína fljótlega. Þegar ég nenni og má vera að. Ég kom heim klukkan 19:00 og lagði mig og núna, klukkan 02:00 get ég ekki sofið þrátt fyrir eina heiðarlega tilraun til þess.
Ég fór inn á própertíið í dag og vökvaði kartöflugarðinn og grænmetisbeðin fyrir vini mína þar um leið og ég stal fullum höldupoka af appelsínum. Sem ég er hálfnaður með. Segi það aftur og enn, það eru ekki til betri appelsínur en úr própertíinu.
 
  Bidda systir ber ábyrgð á Vogsferð litla bróður. Pissa úti undir vegg, smá smell, ekkert að ráði, ennþá. .
Svaf til klukkan 14:00 nema hvað Rod kom klukkan hálfellefu og fór með myndirnar. Það var nefnilega fundur hjá antiairport fólkinu klukkan 11:00. Ég hitti svo Lúí Kastel í kvöld, en hún var á fundinum, og hún sagði að myndin hefði vakið almenna hrifningu og verið samþykkt án nokkurra athugasemda, þannig að hún verður á forsíðu nokkur þúsund bæklinga sem verður dreyft um allan suður Spán og víðar. Svo á eftir að ganga frá og setja upp allan texta og nokkrar myndir verða í honum til við bótar, en þær verða einfaldari i sniðum. Þegar allt verður tilbúið verður bæklingurinn sendur á diski til Englands þar sem hann verður prentaður. Aumingja GunnaJak leiðist svo aðgerðarleysið!!
Ég er búinn að liggja í tölvunni í allan dag við að prenta út dagbókina og skrifa bréf til allra systra minna, Rut í Garði og Kristínar frá Oddakoti. Engin þessarra kvenna á nothæfa tölvu til að komast á netið, en vilja gjarnan fylgjast með mér. Þetta verða ca 26 síður A4 með stafastærð 10 og spássíur upp á einn sentimeter allan hringinn. Annars er þessi skrá orðin 34.119 orð, 159.359 heilir stafir, en áslættirnir, með stafabilum eru orðnir 184.472, og línurnar orðnar 2.972. Þetta prenta ég allt í 5 eintökum, ekkert mál fyrir mig og nýja fína prentarann minn.
Bidda fær aðeins meira frá mér en aðrir vegna þess að ég er búinn að leysa upp helling af flöskumiðum handa henni, en hún safnar þeim. Hérmeð lýsi ég því yfir að hún Bryndís systir mín ber alla ábyrgð á því að ég fer beint inn á Vog þegar ég kem heim. Það er selt vín í öllum búðum hér, jafnvel í barnafatabúðum! Nei annars, ég er að rugla, það er í Ólafsvík. Fyrst kemur hilla með nærbolum, svo hilla með nærbuxum, svo hilla með bindum, dömu og herra og svo hillan með Vodkanum og Whiskeyinu og Brennivíninu og svo öllu hinum nammidrykkjunum. Núna, aldrei slíku vant er ég að tala í fullri alvöru, þetta er raunverulega svona í Ólafsvík, ríkið er í fatabúðinni. En ég var að tala um brennivínsmenninguna á Spáni en ekki á Íslandi. Í hvert sinn sem ég kem inn í brennivíns seljanda búð sé ég nýja og nýja flösku með alls konar miðum sem ég er sannfærður um að Bidda systir á ekki til. Vín sem eru framleidd hérna í kring, en Andalúsía er mikið vínframleiðslusvæði. Og hvað gerir maður ekki fyrir systur sínar, ég kaupi allar þessar flöskur og leysi upp á þeim miðana og helli innihaldinu niður. Í sjálfan mig. (Ég er ekki búinn að segja þennan brandara nema einu sinni áður í Dagbókinni). Þannig að hún systir mín skal fá reikninginn frá Vogi og hann verður ekki lítill vegna þess að þetta eru svo rosalega margir miðar. Fór ekki út úr húsi í dag nema til að pissa þegar skyggja tók. Já, ég er niðri í sveit og hér er ekkert götuljós og algjörlega svartamyrkur eins og núna þegar tunglið er ekki nema örmjó rönd og skýjafar í rokinu sem er núna. Minnir mig alltaf á Baskerville hundinn, það var nú saga í lagi þegar hún var leikin sem framhaldsleikrit í útvarpinu. Samt held ég að það séu ekki nema góðir straumar hér í kring. En það er samt gott að geta farið út til að pissa. Rétti fýlíngurinn. Vel á minnst, hafið þið tekið eftir því að í flestum myndabókum liggur tunglið á bakinu? Og gjarnan kall sem er að leggja sig í því, vegna þess að þetta er eins og hægindastóll? Ég hélt alveg þangað til 6. nóv 03 að þetta væri bara hagkvæmnisatriði hjá teiknurum til að hafa alminnlegt sæti fyrir kall greyið að leggja túnglið á bakið. En nú veit ég betur, tunglið í Jimena de la Frontera liggur á bakinu með oddana upp, eins og það er núna!!! Skrítið? Hér eru svo allar stjörnurnar "okkar", Fjósakonurnar, Sjöstyrnið, Venusvagninn og allar hinar. Þær hafa ekkert farið, en eru á vilausum stöðum á vitlausum tímum. Þær um það, stjörnurnar.

 
23.1.04
  Engan flugvöll í Jimena. Mikil vinna við bækling. Ópel Korsa, blikkdós eða bíll í dulargerfi? .
Ég fór strax í það að fixa myndirnar sem ég tók í gær, en það var meðal annars af Jimena úr fjarlægð til að fella inn í aðra mynd sem ég er að búa til. Þetta er mynd sem á að vera þvert yfir forsíðuna á bæklingnum sem fólkið á móti flugvellinum er að láta mig útbúa. Í fyrra skiptið sem ég fór til Castellar tók ég 20 mynda panórama mynd af sjóndeildarhringnum þar sem flugvöllurinn á að vera og þar sjást líka öll þorpin í nágrenninu nema San Pedro. Það er oní dæld og sést hvergi langt að. Ég þurfti að breyta ótrúlega miklu á myndinni, til dæmis að fjarlægja hús, rafmagnslíkur, staura og alls kyns drasl og gróðursetja í staðinn tré, runna og gras. Svo sótti ég mynd af flugvelli á netið, skrumskældi hann og skekkti og breytti lit og upplausn, þannig að hann er skelfilegur á að líta. Næst náði ég í flugvél á netið, gerði hana svarta og ógnarlega og klippti svo allt saman. Eins og ég hef áður sagt var svo mikil mengun þegar ég tók myndirnar að fjarlæg fjöll voru bara ljósbláar þústir sem ekki var hægt að sjá hvað var. Ég mátti gjöra svo vel og taka hvern blett af myndinni og skýra hann upp og skerpa þannig að hægt væri að sjá hann og þekkja og teikna svo þorpin inn á kortið upp á nýtt. Með eðlilegum og óeðlilegum hléum tók þetta mig allan daginn og alveg til klukkan 07:00 í morgun, að ég var búinn og orðinn ánægður. Þegar ég var orðinn svakalega þreyttur í augunum skrapp ég niðreftir til Malcolms, en ég hafði frétt að það stæði bíll í hlaðinu hjá honum og hefði gert lengi. Jú, mikið rétt, Ópel Korsa einhverra ára eða áratuga gamall, en mjög heillegur. Ég spurði Malcolm um hann, en hann var í miðri jógaæfingu og hálf rak mig burtu, kallaði þó á eftir mér að ég mætti eiga bílinn! Okkur samdist um að ég komi á sunnudaginn seinnipartinn og þá athugum við þetta betur. Rafgeymirinn var tómus svo ég gat ekkert prufað. Það þarf ekki nema klukkuna til að tæma svona geymi á löngum tíma. Ekki ætla ég nú að þyggja bílinn, en kannski koma honum á götuna og nota hann þessa 2 mánuði og að þeim tíma liðnum getur svo Malcolm kannski gert sér eitthvað úr honum. Sjálfur á hann nýlegan óggaponsu sendibíl. Renó eða eitthvað soleiðis. Að öðru leiti svaf ég og dundaði mér í myndinni allan þennan tíma og kíkti á netið og böggaði Prúdensíó og eldaði og át og sk... og svo framvegis.
 
22.1.04
  Blek. Pólitík, hundtík. Castellar. Rod í torfærum á LandRóver. .
Nú er GunniJak kominn inn í miðja hápólitíska deilu hérna! Við Rod fórum í annan myndaleiðangur til Castellar í dag. Vorum að vona að það væri aðeins minni meingun en um daginn, en því miður var það ekki. En okkur vantaði betra útsýni yfir væntanlegt flugvallarstæði. Það er verið að gera upp kastalann í Castellar og þar á að koma hótel og byggðasafn. Græningjar eru á móti því að troða hóteli inn í 5-7 hundruð ára kastala, en peningarnir vinna hér eins og allsstaðar annarsstaðar. Efstu hæðirnar eru lokaðar fyrir almenningi vegna þess að það er flokkur manna að vinna þar. Við spurðum þá samt hvort við mættum ekki skreppa upp á þak í þessum sérstöku erindagjörðum, en það var ekki við það komandi. Þetta voru auðsjáanlega ekki græningjar. Þá hringdi Rod í borgarstjórann í Castellar og bað hann að biðja vinnuflokkinn að hleypa okkur upp, en þá kom í ljós að hann var sko aldeilis hlynntur flugvellinum, okkur grunar að hann eigi einhverra hagsmuna að gæta. Þannig að við fórum bara sneyptir burtu. Við fundum gamlan veg frá kastalanum sem Rod hafði aldrei farið, en reyndist svo hið mesta torleiði. Mér leið konunglega og hjarta Íslendingsins sló af stolti og heimþrá þegar hann loksins komst á eðlilegan sveitaveg. En Rod var ekki eins hrifinn, en ég sagði honum að þetta væri ágæt æfing fyrir hann áður en hann heimsækir mig til Íslands. Það vildi til að við vorum á löngum LandRóver! Við skruppum inn á næsta bar og fengum okkur ómelettu, bara úr eggjum en eingu öðru og helling af brauði og sméri með, svo og 2 fl. af vatni. Þetta kostaði allt rúmar 4 evrur eða um 400 kall! Á heimleiðinni fórum við svo í svona ritfangaverslun eins og, æ ég man ekki hvað hún heitir stóra tölvuogritfangabúðin í Skeifunni, jú, Griffill, nema þessi búð var ennþá hrárri. Þar keypti ég eitt svart blekhylki í nýja prentarann minn. Og getið hvað það kostaði? 28€, já það kostaði ca. 2.600 kall ÍKR! Segi ég einu sinni enn, það er ekki allt ódýrt á Spáni! Nú er á leiðinni til mín frá USA 6 blekhylki, þrjú svört og svo 3, sitt með hverjum lit. Þessi 6 hylki kosta 43€! Ef ég hefði keypt þau í Spænska Griffli hefðu þau kostað 80€ meira, þannig að ég er búinn að græða aftur 80€ sem ég tapaði á bílaviðskiptunum á eBay :-)
Ég lagði mig þegar ég kom heim um 17:30 leitið og svaf í 2 tíma. Erfitt að ferðast og þreytandi. Þessi ferð varð algjör fýluferð sem ljósmyndaferð, en hin besta skemmtun fyrir okkur báða.

 
21.1.04
  Jólapakki. Leila Salahova. Spil. Reikningar. .
Pakkinn frá henni frænku minni á Lágafelli kom í dag, húrra! Að vísu vantaði í hann omformerinn, en það er græja sem maður stingur í sígarettukveikjaragatið og út úr tækinu koma 220 volt. Að vísu voðalega lítil volt, bara eiginlega beibívolt, en nóg fyrir hleðslutæki, sjónvarpi og svo framvegis. Ég hef gloprað fjandans straubreytinum einhversstaðar og falið hann bæði fyrir sjálfum mér og öðrum. Alla vega fann Sæunn hann ekki þrátt fyrir vísbendingar á staðinn sem ég hélt að hann væri á.
Ég fékk bréf frá Rússlandi, frá henni Leilu minni Salahovu, en hún er SOS barn sem ég borga smáupphæð með í hverjum mánuði. En það er þar eins og hér, peningarnir vaxa, dafna og fitna við að fara yfir hagstæð landamæri. Ég fékk mynd af henni, hún er orðin stór stelpa, mig minnir að hún sé ca. 9 ára núna. Svo fékk ég heldur betur afmælisgjöf frá HHÍ, en þar á ég miða með númeri sem ég hef átt, með smá hléum, í ca. 35 ár. Semsagt helminginn af æfi HHÍ, en happdrættið var að gefa mér afmælisgjöf í tilefni af eigin afmæli en ekki mínu. Það voru tvenn spil með mismunandi myndum á hverju spili, málverk af æfagömlum árabátum og sjósókn. Svo fékk ég bréf frá Sveitinni minni þar sem mér er tjáð að ég verði að endurnýja umsóknina um húsaleigubætur fyrir 20. þ.m., ég sendi umsóknina á meili um hæl og það slapp til, ég held bótinni. Ég skrapp í bankann í dag að sækja mér peninga, lítið orðið eftir af matarpeningunum þennan mánuðinn, enda er ég alltaf að eyða í eitthvað annað þarfara en spikefni. Til dæmis keypti ég mér svakalega flottar terelínbuxur á útsölunni á torginu þar sem ég keypti Jimena bolinn um daginn. Heimsótti Rod í stúdíóið hans, ótrúlega flott, í æfagömlu húsi við aðalgötuna okkar. Hann er búinn að vera að basla við að taka myndir af listaverkum með filmumyndavél, en það gengur mjög illa. Myndirnar eru skjannahvítar með hvítu 3D mynstri og það kemur alltaf vitlaus birta hjá honum. Ég gerði nokkrar tilraunir í dag og þær lofa góðu. Ætla að vinna aðeins með þær í fótósjopp og fara svo í Prófessional leiðangur til að taka alvöru myndir af listaverkunum. Ég var heppinn, var með tvo fulla poka þegar ég kom út úr Hagkaup í dag og átti eftir að labba upp allar þessar brekkur svona klifjaður. En þá hitti ég einn nágranna minn og sníkti far með honum. Mikið feginn!
 
20.1.04
  Fellir, móðuharðindi. Enn og aftur í SvefnHerberginu, aftur og nýbúinn. Prúdencio í mat eða í matinn. .
Í dag og í gær hefur verið harðindatíð, í gærkvöldi, eða nótt, fór hitinn niður í 6 celsíusa og hvorugan daginn yfir 16 yfir daginn. Enda held ég að fólkið hérna í kringum mig sé bókstaflega að hrinja niður úr kulda, þetta nálgast fellir eins og sagt var í gamla daga. Vel á minnst, hvaða ár voru Skaftáreldar? Ég þarf að vita það af sérstöku tilefni og ef einhver vill upplýsa mig um það skal ég gefa ykkur skýringu, í smá sögustund. Email til GunnaJak

Ég átti eftir frágangsvinnu í títtnefndu svefnherbergi fröken Lúíar Kastel og ég notaði tækifærið og kláraði það mikið til á meðan hún var í vinnunni. Gott að vera búinn, en það er samt heilmikið sem okkur langar að ég geri hérna útivið. Hlaða smá kant, helluleggja að þvottahússdyrunum og fleira. En það kemur dagur eftir þessa viku svo ég er nú ekki að stressa mig á því og hún er ekki byrjuð á því heldur, en svo vel þekki ég nú orðið frauku þessa að þess verður ekki langt að bíða. Ætlaði svo niðrí bæ að ná mér í peninga úr hraðbankanum, en bara nennti því alls ekki, enda var ég að basla við tölvuna í mest allan dag. Ég held að Prúdencio hafi þessi rosalega róandi áhrif á mig, hann er nú einn sá allra latasti sem ég hef kynnst, bæði af ferfættum og tvífættum letingjum. Það sem kvikindið getur sofið maður, og þess á milli gerir hann í því að stríða mér og ætlast svo til að fá endalaust klapp og klór fyrir. Ótrúlegur!! Hann laumast alltaf til að leggjast ofan á tölvuna mína og ég bara bíð eftir að hann ýti á takkann sem á stendur: "Eyða öllu af harða diskinum og þeim lina líka", ég get lofa ykkur því að ef hann gerir það þá skal verða kattarsteik í matinn og þá ætla ég að bjóða öllum hundunum í hverfinu, sem hann hefur líka verið að stíða í gegnum árin, í mat með mér. En ekki Lúí. Ekkað nebbnaða.

 
19.1.04
  Mengun eftir Frankó sáluga .
Alveg ótrúlega latur í dag, enda fyrsti dagurinn í hálfan annan mánuð sem ég tek mér frí, með góðri samvisku. Var annars allan daginn, með hléum til átu og svefns, að garfa í myndunum sem ég tók í fyrra dag í Castellar. Ég verð líklega að fara aftur og endur-taka myndirnar, það var svo mikil mengun þennan dag að allt er í móðu. Og nú kemur smá sögukorn úr sögu Spánar: Þegar bretar tóku Gíbraltar urðu nokkur þúsund Spánverjar atvinnulausir vegna þess að bretarnir vildu ekki spánverja í vinnu af einhverjum pólitískum ástæðum. Þá var Frankó einræðisherra á Spáni og til að skapa þessu fólki vinnu var sett upp geysi mikill iðnaður í nágrenninu, milli Ageciras og Gíbraltar. Aðallega stáliðnaður og aðrar loftmeingandi verksmiðjur. Enn í dag er þetta meingaðasta svæði Spánar og ef hér ríktu vestlægar áttir væru sólarstrendurnar hálf eða al ónýtar. Stundum gerir sunnanátt og þá leggst mengunarský yfir vestanverða Andalúsíu og það var það sem skeði í fyrra dag. Og þetta var sögustund GunnaJak.

 
Dagbók GunnaJak

ARCHIVES
02.11.03 / 09.11.03 / 16.11.03 / 23.11.03 / 30.11.03 / 07.12.03 / 14.12.03 / 21.12.03 / 28.12.03 / 04.01.04 / 11.01.04 / 18.01.04 / 25.01.04 / 01.02.04 / 08.02.04 / 15.02.04 / 22.02.04 / 29.02.04 / 07.03.04 / 14.03.04 / 21.03.04 / 28.03.04 / 04.04.04 / 05.09.04 / 12.09.04 / 19.09.04 / 26.09.04 / 03.10.04 / 10.10.04 / 17.10.04 / 24.10.04 / 31.10.04 / 07.11.04 / 14.11.04 / 21.11.04 / 28.11.04 / 19.12.04 / 09.01.05 / 16.01.05 / 06.02.05 / 21.08.05 / 05.02.06 / 09.08.09 / 17.03.13 / 01.11.15 /


Powered by Blogger

Weblog Commenting by HaloScan.com