GunniJak í Danmörku
Ford Sierra 2,0i CLX. GunniFótalatiJak.
.
Skrapp í bæinn. Ætlaði að hitta Rod í stúdíóinu, en hann var ekki að vinna. Fór heim og skrapp inn á eBay. Og þar gaf á að líta. Þessi fíni Ford Sierra 2,0i CLX á spænsku síðunni. Og á þessum líka fína prís. Ég nenni ekki að segja hvað var sett á hann, en það var ótrúlega lágt verð. Ég gerði ráðstafanir til að fjármagna kaupin ef mér dytti í hug að bjóða í hann og svo ótrúlega vildi til að ég fengi hann. Ég sagði engum manni frá þessu, fólk er orðið svo útborað (Bora, baur, burum, boring=hundanskotileiðinlegur) af endalausum, já bókstaflega enda-lausum bílavæntingasögum frá mér. Þær eru búnar að vera margar og hafa aldrei haft endir, og varla byrjun heldur. Jæja, uppboðið á Fordinum endar í fyrramálið klukkan 11:24:30. Þegar þetta er skrifað klukkan að verða fjögur í nótt er enginn búinn að bjóða betur.
Tapas og bjór. Á pöbbnum og hjá Lúí. Furðufiskur á 397 kall. Allir til Spánar að kaupa ýsu.
.
Svaf til 11:00 og dreif mig þá á lappir og fór að vinna í tölvunni. Fór svo í bæinn og sleit pening út úr bankanum, Hreppur hafði borgað húsaleigubæturnar í dag, þökk þeim, ég átti ekkert til að éta nema allskonar baunir og þær eru leiðigjarnar eintómar. Fór í Stórmarkaðinn okkar og keypti nauðsynjar og ekkert annað. Kom við á uppáhaldspöbbnum mínum beint á móti Internetkaffinu hans , æ hvað heitir hann daninn sem kom mér á Internetið, já, Allans, hann er ekki enn búinn að opna, Endemis pappírsvesen allstaðar. Já, ég fékk mér Tapas á barnum og tvo bjóra. Í þetta skipti var bara um þrjá rétti að velja, og ég valdi eitthvað sallad sem ég hef ekki græna glóru hvað var í, bar að það var svaka gott. Svo bauð frökn Lúí mér í bjór og fleira í kvöld og þar sem ég var farinn að smakka aðeis rauðvínið sem ég keypti i dag varð kvöldið hið besta. Gaman á Spáni, það má nú segja.
Ég get ekki stillt mig um að tíunda það sem ég keypti í stórmarkaðnum í dag fyrir 1404.90.- Íkr. Ef þið eruð orðin leið á þessum sífelldu verðdæmum mínum, sleppið þeim þá bara! En í alvöru, hvað hefðum við fengið á íslandi fyrir þennan pening? Bara ketið? Eða vínið? Er ekki eitthvað mikið að þegar ég fer í búðina við hliðina á stórmarkaðnum og kaupi þar fisk sem er með blett fyrir aftan tálknin, svarta rönd þaðan og aftur á sporð, gróft hreistur og silfurlitur á 3.30€ kílóið? Eða 397 íkr þegar sami fiskur kostar á annað þúsund krónur á Íslandi? Er nokkuð skrítið þó manni blöskri? Hvar liggur munurinn? Það veiðist engin ýsa við strendur Spánar og best gæti ég trúað að þessi ýsa hafi verið frá Íslandi. Ég spurði hana hvaðan hún væri, en þar sem greyið var frosin og í bútum var ekki hægt að ætlast til að hún svaraði. En þarna munar allavega 300 % á verði heima og að heiman. Fokk!!! ( Þetta orð þýðir, í þessu samhengi, að draga upp fokkuna á seglskipum. Það þótti bæði vont verk og erfitt og síðan er talað um Fock þegar eitthvað er sérstaklega erfitt og andstyggileg.) Ég fór í stórmarkaðinn í dag eins og áður segir og keypti eftirfarandi:
30 01 04 Túnfisk í dós 120 gr venjuleg Caballa #Albo......... 1,09 € 1 1,09 € 98,10 kr.
30 01 04 Súputeningar 8 stórir Kjúkl... Doble Caldo #Knorr 0,52 € 1 0,52 € 46,80 kr.
30 01 04 Súputeningar 8 stórir Boli..... Caldo de #Knorr..... 0,52 € 1 0,52 € 46,80 kr.
30 01 04 Kraftsúpa ?........................... Doce Verduras........ 0,95 € 1 0,95 € 85,50 kr.
30 01 04 Kraftsúpa ?........................... Sopa de Cebolla..... 0,95 € 1 0,95 € 85,50 kr.
30 01 04 LGG í 6 stórum fl 600 gr....... ActiMel #Danone..... 2,99 € 1 2,99 € 269,10 kr.
30 01 04 Spaghetti 3cm mjóir 250 gr... Pasta #Gallo.......... 0,40 € 1 0,40 € 36,00 kr.
30 01 04 Ostur í sneiðum 200 gr Innp. Queso Asturiana..... 0,69 € 1 0,69 € 62,10 kr.
30 01 04 Kjúklingapulsur 4 stórar 350g Jumbo Pollo .............1,59 € 1 1,59 143,10 kr.
30 01 04 Mjólk 1l 14. Apríl Engin E efni.. Leche #Puleva.........0,92 € 1 0,92 € 82,80 kr.
30 01 04 Sojabrauð gróft....................... ................................0,95 € 1 0,95 € 85,50 kr.
30 01 04 Rauðvín í kassa 1 líter............. Tinto Vino #Vivó.......0,60 € 1 0,60 € 54,00 kr.
30 01 04 WC pappír 4 rúllur.................. Higienico...................0,65 € 1 0,65 € 58,50 kr.
30.0104...Ketlíklegasvínaketca.600g ........................................2,79€.....1..............2,79€........251,10kr. Samtals..................................................................................................................15,61€ .1.404,90 kr
Í þriðja dálki kemur fyrst það sem varan heitir á spænsku og síðan vörumerkið á eftir # merkinu. Þetta er EXEL skrá sem núna telu á annað hundrað línur. En hér var bara tekið það sem ég keypti í Hagkaup þeirra Jimena búa í dag.
Húsaverð fer lækkandi kringum húsið mitt, af hverju? Aðgöngumiðar að Nó Erport. Blankur, aldrei slíku vant.
.
Sturtudagur. Leiðinlegasta sem ég geri er að fara í sturtu eða bað yfirleitt. Þess vegna vann ég það til á Lágafelli að keyra 44 kílómetra til að þurfa ekki að fara í heimahússsturtu. Samt er fínasta sturta hjá Sæju frænku og mér guðvelkomin á nóttu sem degi. Að vísu soldið þröng fyrir fullvaxna, en það var ekki ástæðan. Ég bara hata sturtu. Allt öðru vísi í sundlauginni, þar er maður úti á miðju gólfi og getur haft alla sína hentisemi. Og rakað sig rennblautur og farið svo aftur í sturtu til að skola af sér sápuna. Ég get svosem ekki kvartað hérna, Lúí segir að sturtan hér og baðherbergið allt sé það lang flottasta í allri Jimena. Ég held að það sé ekki fjarri lagi, það er stór og mikill sturtuklefi og flott sturta með gnótt af heitu og köldu vatni. Úr hverju haldið þið að sturtuklefinn sé? Megið giska 2348 sinnum, en ef það dugar ekki þá er hann hlaðinn úr múrsteini og pússaður!!! Nema hvað. Ég held að þetta antiheimasturtusindrom sé eitthvað meðfætt og galli í litningakeðjunni, ég hef alltaf verið svona. Kannski af því það var ekkert bað í Hallstúni þar sem ég er alinn upp. Bara bali. Og ekki farið í bað á hverjum degi, enda ekkert rennandi heitt vatn lengi vel. Var bara hitað á kolaeldavélinni. Ég man ekki eftir því að hafa beðið tjón á líkama eða sál vegna þess að hafa ekki farið í fjandans sturtu tvisvar á dag. Og í sambandi við baðfarir, nú er talað um að kornabörn séu og hafi lengi verið ofböðuð. Húðin þornar upp og þó verið sé að sulla einhverjum kemiskum olíum í staðinn er það aldrei það sama og eðlilegir húð vessar og fita.
Ég lét mig nú samt hafa það að fara í sturtu og svo skrapp ég í bæinn. Í súpermarkaðinn og keypti inn fyrir 14.50€. Ég svitnaði þegar stelpan nefndi upphæðina vegna þess að ég átti ekki nema 15.05€ á kreditkortinu í Caja san Fernando bankanum mínum og innan við hundraðkall á Íslandsbankakortinu. En þetta slapp til og ég vona að Hreppur borgi mér húsaleigubæturnar á morgun, þeir borga oftast seinasta virka dag í mánuði en Tryggingastofnum alltaf þann fyrsta, eins þó hann sé á sunnudegi eins og núna. Ekki kom blekið og batteríin í dag, nú er ég farinn að spyrja á Pósthúsinu þrisvar á dag eins og í biðinni löngu eftir Kassanum mínum. Kassanum með stórum staf.
Alltaf fellur mér eitthvað til, Braiany vinkona mín bað mig að búa til 50 aðgöngumiða að kvöldverði sem á að halda til fjáröflunar fyrir No Airport samtökin. Byrjaður, en verð að fá meira blek áður en ég get prentað þá alla. Ég sem var farinn að kvíða því að hafa ekkert að gera!
PS: Ég fer ALLTAF í sturtu annan eða þriðja hvern dag. Svo þið haldið ekki á ég sé kominn með 30 metra fríradíus. Alla vega er kötturinn ekki flúinn, ég hef það til viðmiðunar.
Áveituframkvæmdir. 30 cm. reglan hefur ekki verið prófuð á Prúdencio, ennþá. Bilaður bróðir eins og bræðum er gjarnt.
.
Dagurinn sem ég ætlaði ekkert að gera. Alls ekkert nema sofa, éta og svo framvegis. En þá er bankað, Gúnnje, mæ seiving maskín is stopp, help! Í íslenskri þýðingu: Hæ GunniJak, Lúí hér, ég var að vinna með saumavélina mína í allan dag og núna er hún orðin svo stirð og þung að ég er hætt að geta saumað! Ég er á leiðinni með hana á saumavélarverkstæði í Algeciras. Nei, bíddu við kona, engan æsing, láttu Fjölvirkjann kíkja á hana áður en þú gerir eitthvað sem kostar þig hundrað evrur. Ó, heldurðu að þú getir lagað hana? Já, alveg örugglega, þá henti hún Bróður sínum inn á eldhússborðið hjá mér og fór og náði í, eftir minni beiðni, verkfæri og saumavélarolíu. "Bróður sínum": saumavélin heitir Brother. Og það var eins og mig grunaði og ég hef oft komist í áður, skyttan var orðin hálf föst af kuski og olíuleysi. Ég hreinsaði alla vélina upp og smurði allt sem smyrja þurfti. Og viti menn, betri en ný og bilar aldrei eins og segir í þjóðsöng Fjölvirkja. Godd bless jú sagði Lúí og brosti út í báðar kinnar svo sjá mátti aftur fyrir hnakka.
Ég hef verið að trassa að koma áveitukerfinu mínu í gott lag, er búinn að eiga allt efni í það síðan í fyrra, en það hefur bara ekki rignt á þessu ári fyrr en í gær. En nú var ekki til setunnar boðið, ég endurbyggði það mest allt og notaði alvöru sílikon en ekki akrílkítti eins og þorskhausarnir í BÝKÓ seldu mér. Sílikonið fékk ég hjá kaupmanninum mínum á horninu, það stóð á milli brauðsins og kjúklinganna. Ég var bara alminlega þreyttur í kvöld.
Stytti upp seinni partinn og endaði með kvöldsól. Ég treysti henni samt ekki, það virðist vera erfitt að hætta að rigna ef það byrjar á annað borð. Púdencio er ágætlega hress, hann er aftur alfluttur niður til mín. Lúí er soldið abbó sem von er, en hann hefur steinhjarta og hefur enga samúð með fóstru sinni sem er búin að ala önn fyrir hann í 14 ár. Nú er hann farinn að taka upp á því að sofa ofan á mér, ef ég sný mér harkalega flýgur hann í loftköstum og ómögulegt að vita hvar hann lendir. Vill til að kettir lenda yfirleitt mjúklega. Þekkið þig 30 cm regluna? Ef þú heldur á ketti með lappirnar upp í loft þarf hann ekki nema 30 cm til að snúa sér og lenda á fótunum.
Rigning. Gaucin. List eða ekki list. Hjón í megrun buðu okkur Rod í kaffi, guði sé lof fyrir bumbuna mína.
.
Húrra húrra, það er komin rigning!! Guði sé lof, vont er að hafa of mikla rigningu, en ennþá verra hafa hana of litla. Að vísu hefði mátt velja betri dag til að byrja að rigna vegna þess að ég fór í skemmtilegt ferðalag í morgun. Rod þurfti að hitta listamann í
Gaucin og bauð mér með sér. Þetta er fjallaþorp lengst uppi á
fjallstoppi. Það er krákuvegur að bænum. Rod sagði mér að það væri svakalega flott útsýni á þessari leið, en við sáum mest lítið af því. Það rigndi ekki mikið, en það var svona þokuslæðingur með rigningunni þannig að ekkert sást sem var lengra í burtu en 100 metrar. Ergilegt, en kom ekki að eins mikilli sök vegna þess að listamaðurinn sem við heimsóttum er mjög sérstakur karakter. Því miður man ég ég ekki hvað hann heitir, en hann er þýskur, var 13 ár prófessor í listaháskóla í Glaskow í Bretlandi. Ekki veit ég hvað kom fyrir hann þar, en hann tók sig upp, keypti sér mótorhjól og flutti til Spánar. Nú er hann Mótorhjólatöffari og hvunndagsfötin hans eru svört töffaraföt og þröng leðurstígvél. Til skýringar á því af hverju ég tala svona mikið um þetta er sú að þetta er maður á mínum aldri, semsagt á grafarbakkanum. Hann á risastórt hús á fjórum hæðum í brattri brekku, þannig að allar hæðirnar enda í brekkunni. Uppi á háalofti er hann með
grafískar græjur, til að prenta og móta alls konar listaverk. Þangað upp átti Rod erindið, hann er að móta pappír í þrívídd en á ekki
pressu til að gera það með. Hann samdi við gaurinn að meiga koma í pressuna hans hvenær sem hann vill. Heppinn Rod. Á næstu hæð, götuhæðinni, en eldhús og flott stofa með heilan glervegg sem snýr að
stórum dal sem hann sagði mér að væri rosalega fallegur. Svo á tveimur neðri hæðunum er
gallerí í mörgum herbergjum eða sölum. Allt fullt af listaverkum eftir hann. Meiriháttar. Þegar við Rod gátum slitið okkur frá Listinni fórum við í heilmikinn göngutúr um Gaucin, alveg upp undir kletta sem halda uppi kastala, nema hvað. Allstaðar
kastalar og aftur kastalar. Þessi sýnist frekar lítill, en Rod sagði að hann leyndi á sér. Við fórum á stað í þennan leiðangur um kl. 11:00 og komum heim klukkan fimm. Flottur túr, en æsti og tryllti upp í mér löngun til að koma aftur í léttara veðri. Þegar ekki þarf að nota
regnhlífar! Við kynntumst svo afskaplega
aðlaðandi hjónum sem buðu okkur heim uppá kaffi og saltsýru. Kaffið var vont en saltsýran góð. Þegar heim var komið og ég var að fá mér síðdegislúrinn fixaði ég myndirnar og gerði þær nethæfar. Þegar þetta er skrifað er ég ekki búinn að koma þeim inn, en vona að ég verði búinn að því áður en ég skelli dagbókinni á netið. Jú, víst er ég búinn að því, hvað er GunniJak að bulla! Ef ég fer að hafa minna að gera ætla ég að hafa þennan háttinn á, skella nýju myndunm inn og hafa linka á þær frá Dagbókinni. Það dræpi ykkur nú varla að senda mér smá meil og segja ykkar álit á þessu og öllu öðru, hverju sem er. Ég ætla að setja svar-form við dagbókarfærslurnar, en bara kann það ekki. Prófa það samt fljótlega.
Prófessionalljósmyndarastælar. Beðið eftir rigningu, klórum í mastrið. D vítamín skortur.
.
Mætti í stúdíóið til Rod klukkan hálf tólf með tölvuna og myndavélina. Nú skyldi gera úrslita tilraun til að taka mynd af grafíska listaverkinu sem hann er að fara að setja á sýningu í Cádiz. Rod á góðan þrífót og ég stillti myndavélinni upp á hann, yfir sérstöku hallandi borði sem hann teiknar á. Myndin er upphleypt og skjannahvít og það verður að falla á hana ljós frá réttu sjónarhorni til að hún komi vel í ljós. Þar stendur hnífið í kúið, það er svakalega erftitt að taka mynd af hlut sem er allur mis upplýstur. Þegar einn hlutinn er kominn með rétta snerpu og lit er annar hluti orðinn ómögulegur. Ég tók ca. 50 myndir með mikilli upplausn og setti þær jafnóðum inn á tölvuna og þar gátum við skoðað þær við betri aðstæður en í litla glugganum á myndavélinni. Það vill til að myndavélin er með sérstaka stillingu fyrir Halogen lýsingu, en það er einmitt lýsingin sem Rod notar á þessar 3D myndir sínar. Við vorum að basla við þetta í 4 tíma og svo fór ég heim og er nýbúinn að klára að prenta út mynd sem mér líkar. Semsagt, vinna frá kl. ellefu í morgun og til klukkan eitt í nótt. En mikið rosalega er þetta gaman, ég lifi mig alveg inn í svona dútl, en ég þekki ekki marga sem ég held að hafi svona mikla þolinmæði. Jú, kannski Smári frændi minn Æðeyjingur. Vel á minnst, ég tók hann í hálfsmánaðar kúrs í tölvufræðum, m.a. Fótósjopp, nú er ég aftur að fara að kenna Prófessionality Listamanni á tölvu, nei fyrirgefið mér ef þið getið, Makkinntoss og á Fótósjopp. Feraðtakkettaaðmér. Nú bíð ég spenntur eftir að sýna Rod myndina og hvort hann verður ánægður með hana. Hann rétt ræður eftir alla þessa vinnu. Djöfull væri ég ríkur maður ef ég tæki alltaf fullt kaup fyrir allt sem ég geri fyrir aðra! En á móti kæmi ef allir tækju fullt kaup fyrir allt sem þeir gera fyrir mig er ég ekki eins viss um að verða auðugur. Kannski jafnar þetta sig bara upp.
Það er búið að vera alskýjað í allan dag og nú mænir fólk til himins og óskar eftir rigningu. Það er allt að skrælna hérna eftir fimm vikna bónusveður handa GunnaJak. En nú er komið nóg af því í bili og má alveg fara að rigna. Núna, klukkan hálfþrjú að nóttu, en hvasst og hlýtt, kannski bara rignir hann í nótt. Bara ekki á morgun vegna þess að þá er ég að fara í ferðalag.
Ég má til að stinga því hér inní að Rod leysti mig út með fullan höldupoka af appelsínum. Hann heimsótti einhvern vin sinn sem er með fleiri hektara af appelsínutrjám og hann gaf honum tvo poka. Svo þegar ég kom heim var fullur höldupoki af appelsínum á hurðarhúninum hjá mér, Jane fer reglulega í einhvern garð og "stelur" gommu af appelsínum og gaf mér og Lúí sinn hvorn pokann. Ætli það sé nokkur hætta á að ég deyji út D-vítamín skorti?
Bíleign í 24 tíma. Gott kaffi hjá Malcolm.
.
Ég átti stefnumót við Rod í stúdíóinu hans kl. 11:00, en hann afboðaði það og bað mig að koma á morgun á sama tíma. Ok. Svo ég var bara í tölvunni fram eftir degi, en skrapp þá að heimsækja Malcolm vin minn. Ég byrjaði á því að skoða Ópelinn hátt og lágt og leist bara enn betur á hann í björtu en í myrkri. Suma hluti ætti maður bara að skoða í myrkri, en ekki bíla. Svo bauð hann mér inn og við fengum okkur te, hann er jú breskur að uppruna eins og flestir vinir mínir hér. Hann sagðist standa við það að gefa mér bílinn og sagði að hann hefði lagt honum endanlega fyrir ári síðan af því rafgeymirinn hefði verið orðinn ónýtur. Það hefði svo sem ekki verið babbur í mínum báti ef ekki hefði komið annað til. Það eru tryggingamál. Bíllinn er skráður í Gíbraltar og á breskum númerum þar af leiðandi, tryggður hjá tryggingafélagi í Bretlandi og nú ætlaði íslendingur að fara að tryggja hann til að keyra hann á Spáni. Það sér hver heilvita maður að þetta hefði orðið tóm vitleysa. Það er kergja á milli breta, Gíbraltarbúa og Spánverja útaf því hver á að eiga Gíbraltar og þessir aðilar gera allt sem þeir geta til að bögga hvern annan á löglegan hátt, með töfum, leti, ergelsi og skömmum. Ef allt hefði gengið eins og í sögu hjá mér hefði ég verið orðinn 2-300€ fátækari og hefði verið búinn að koma bílnum á götuna 3. apríl!!! Þannig að ég var ekki bíleigandi á Spáni nema í tvo sólarhringa.
Húsið hans Malcolms er á hektara stórri lóð sem er alsett trjám á stangli, það er ekki skógur heldu fullt af trjám. Af óteljandi gerðum og stærðum. Ég hafði með mér myndavélina og tók helling af myndum sem koma á myndasíðuna mína fljótlega. Þegar ég nenni og má vera að. Ég kom heim klukkan 19:00 og lagði mig og núna, klukkan 02:00 get ég ekki sofið þrátt fyrir eina heiðarlega tilraun til þess.
Ég fór inn á própertíið í dag og vökvaði kartöflugarðinn og grænmetisbeðin fyrir vini mína þar um leið og ég stal fullum höldupoka af appelsínum. Sem ég er hálfnaður með. Segi það aftur og enn, það eru ekki til betri appelsínur en úr própertíinu.
Bidda systir ber ábyrgð á Vogsferð litla bróður. Pissa úti undir vegg, smá smell, ekkert að ráði, ennþá.
.
Svaf til klukkan 14:00 nema hvað Rod kom klukkan hálfellefu og fór með myndirnar. Það var nefnilega fundur hjá antiairport fólkinu klukkan 11:00. Ég hitti svo Lúí Kastel í kvöld, en hún var á fundinum, og hún sagði að myndin hefði vakið almenna hrifningu og verið samþykkt án nokkurra athugasemda, þannig að hún verður á forsíðu nokkur þúsund bæklinga sem verður dreyft um allan suður Spán og víðar. Svo á eftir að ganga frá og setja upp allan texta og nokkrar myndir verða í honum til við bótar, en þær verða einfaldari i sniðum. Þegar allt verður tilbúið verður bæklingurinn sendur á diski til Englands þar sem hann verður prentaður. Aumingja GunnaJak leiðist svo aðgerðarleysið!!
Ég er búinn að liggja í tölvunni í allan dag við að prenta út dagbókina og skrifa bréf til allra systra minna, Rut í Garði og Kristínar frá Oddakoti. Engin þessarra kvenna á nothæfa tölvu til að komast á netið, en vilja gjarnan fylgjast með mér. Þetta verða ca 26 síður A4 með stafastærð 10 og spássíur upp á einn sentimeter allan hringinn. Annars er þessi skrá orðin 34.119 orð, 159.359 heilir stafir, en áslættirnir, með stafabilum eru orðnir 184.472, og línurnar orðnar 2.972. Þetta prenta ég allt í 5 eintökum, ekkert mál fyrir mig og nýja fína prentarann minn.
Bidda fær aðeins meira frá mér en aðrir vegna þess að ég er búinn að leysa upp helling af flöskumiðum handa henni, en hún safnar þeim. Hérmeð lýsi ég því yfir að hún Bryndís systir mín ber alla ábyrgð á því að ég fer beint inn á Vog þegar ég kem heim. Það er selt vín í öllum búðum hér, jafnvel í barnafatabúðum! Nei annars, ég er að rugla, það er í Ólafsvík. Fyrst kemur hilla með nærbolum, svo hilla með nærbuxum, svo hilla með bindum, dömu og herra og svo hillan með Vodkanum og Whiskeyinu og Brennivíninu og svo öllu hinum nammidrykkjunum. Núna, aldrei slíku vant er ég að tala í fullri alvöru, þetta er raunverulega svona í Ólafsvík, ríkið er í fatabúðinni. En ég var að tala um brennivínsmenninguna á Spáni en ekki á Íslandi. Í hvert sinn sem ég kem inn í brennivíns seljanda búð sé ég nýja og nýja flösku með alls konar miðum sem ég er sannfærður um að Bidda systir á ekki til. Vín sem eru framleidd hérna í kring, en Andalúsía er mikið vínframleiðslusvæði. Og hvað gerir maður ekki fyrir systur sínar, ég kaupi allar þessar flöskur og leysi upp á þeim miðana og helli innihaldinu niður. Í sjálfan mig. (Ég er ekki búinn að segja þennan brandara nema einu sinni áður í Dagbókinni). Þannig að hún systir mín skal fá reikninginn frá Vogi og hann verður ekki lítill vegna þess að þetta eru svo rosalega margir miðar. Fór ekki út úr húsi í dag nema til að pissa þegar skyggja tók. Já, ég er niðri í sveit og hér er ekkert götuljós og algjörlega svartamyrkur eins og núna þegar tunglið er ekki nema örmjó rönd og skýjafar í rokinu sem er núna. Minnir mig alltaf á Baskerville hundinn, það var nú saga í lagi þegar hún var leikin sem framhaldsleikrit í útvarpinu. Samt held ég að það séu ekki nema góðir straumar hér í kring. En það er samt gott að geta farið út til að pissa. Rétti fýlíngurinn. Vel á minnst, hafið þið tekið eftir því að í flestum myndabókum liggur tunglið á bakinu? Og gjarnan kall sem er að leggja sig í því, vegna þess að þetta er eins og hægindastóll? Ég hélt alveg þangað til 6. nóv 03 að þetta væri bara hagkvæmnisatriði hjá teiknurum til að hafa alminnlegt sæti fyrir kall greyið að leggja túnglið á bakið. En nú veit ég betur, tunglið í Jimena de la Frontera liggur á bakinu með oddana upp, eins og það er núna!!! Skrítið? Hér eru svo allar stjörnurnar "okkar", Fjósakonurnar, Sjöstyrnið, Venusvagninn og allar hinar. Þær hafa ekkert farið, en eru á vilausum stöðum á vitlausum tímum. Þær um það, stjörnurnar.